Fimmtudagur, 22. apríl 2010
sumarið er komið
Gleðilegt sumar
Það er alltaf jafn hressandi þegar sól fer að hækka á lofti, gæsir komnar ásamt öðrum farfuglum. Nú fer maður að liggja fyrir tófunni þar sem eru mikil og góð fuglasvæði, sækja þær oft í það uppúr þessum tíma, getur verið gott að ná þeim áður en þær fara að týna eggin undan fuglunum. En það á nú bara við ákveðnar fuglategundir við sumar er efiðara við að eiga. Hefur þessi mánuður verið óhagstæður fyrir mig þ.e. lítið sem ekkert komist á refaveiðar, hefur verið svo mikið að gera í vinnu og á heimilinu. Því hef ég afar lítið brúkað flautuna, fer vonandi eina til tvær ferðir um helgina og svo verður riffilinn sendur suður til beddunar og setja kvikasilfur í afturskepti. Á að reyna að mýkja hann aðeins fyrir komandi átök í grenjaveiðinni
Nú eru flestar tófur búnar að finna sér sitt greni og styttist í got hjá þeim ca svona 2 vikur í það. Refirnir eru duglegir að fara um og merkja sér sín landamæri á óðulum sínum. Óðulin geta verið afar misjafnlega stór, fer eftir fæðuframboði og fjölda dýra. Tófan er svo gríðarlega aðlögunarhæf að þær geta minnkað eða stækkað sín óðul eftir því sem við á. Eru til dæmi þess að ekki séu nema nokkurhundruð metrar á milli grenja. Þar sem er nóg af að éta og þær hafa það gott þá minnka þær einfaldlega sín óðul og svo stækka þau þegar tófum fækkar.
En hvað um það, ég setti víst inná aðra síðu hér um daginn eitthvert algert bull, þar sem menn voru að gera litlar vísur. En einhverstaðar þarf að byrja og mun ég setja hér smá vísur inn en þú lesandi góður þarft ekki að taka þær of hátíðlegar þetta er nú bara gert til skemmtunar og þá sérstaklega fyrir undirritaðan.
Mikil er sú mæta list
melrakka við að glíma
er það oft erfið vist
einn að liggja í óratíma
kuldinn manni kennir eitt
klæða skal sig afar mikið
þolinmæði eigi þrjóta neitt
þá kemur tófa fyrir vikið
núna skal tófan nást
nærri ekkert má sepa
svo er það einna skást
að skjóta til að drepa
Kv, Sveinn
Um bloggið
Sveinn Björnsson
Tenglar
Videó
- Mórauður refur skotinn við æti Legið fyrir hinum íslenska ref
- Rauðrefur kemur á flautu Hér má sjá svía kalla til sín rauðref
- Tófan, myndband-Eggjaþjófurinn Smá video af tófunni að afla sér fæðu
- Tófan að ná sér í gæsarunga Tófunni þykja ungar góðir
- Tófur að sumarlagi á svalbarði Hvolpar á ferð á Svalbarði
- Refaveiðar með Örnum í Mongólíu Mongólískir veiðimenn halda uppi ævaforni hefð
Tenglar á Tófusíður
- Bjarmaland Heimasíða Bjarmalands, félag atvinnuveiðimanna á ref og mink
- Melrakkasetur Íslands Fræðasetur sem er helgað íslenska refnum, kíkið á þetta fullt af myndum og mikið af upplýsingum.
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 38319
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Amen
Morri (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 00:07
Góður Sveinn....
Hjalti (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 14:19
Góð vísa... Ég keyri talsvert um landið og hef haft gaman að því að sjá hvað farfuglunum fjölgar ört... gæsir... álftir í hópum... og mér fannst ég sjá lóur á túni í dag... samt ekki viss... sumarið er endanlega komið þegar maður sér fyrstu kríuna... gleðilegt sumar !
Hver er uppáhaldsfugl tófunnar ?
Brattur, 23.4.2010 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.